Eðli málsins samkvæmt veltum við þessu mikið fyrir okkur. Ef nemendur læra málfræðihugtök, orðflokkagreiningu og setningafræði í grunnskóla ætti ekki að endurtaka þetta í framhaldsskóla. Það er vissulega hægt að deila um málfræðikennslu grunnskóla en okkar markmið er ekki að skoða hana, heldur einblínum við á framhaldsskóla. En íslensk málfræði á alls ekki að vera "afgreidd" í grunnskólum, heldur er afar mikilvægt að bæta ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa þegar öðlast þegar í framhaldsskóla er komið. Þá er þekkingin til staðar og mikilvægt er að nýta hana; hagnýting málfræðinnar - notkun tungumálsins. Íslenskukennsla í framhaldsskólum ætti því að ef til vill byrja á ákveðnum grunni í málvísindum þar sem fjallað er um hvað tungumál er, hvernig það lærist og hvernig það er notað.
No comments:
Post a Comment